Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum en eftir hann liggur þó mikið efni. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talað yfir þær. Þá fór hann margar sýningaferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.
Þeir bútar úr kvikmyndum Kjartans sem hér um ræðir eru af íþróttamóti á Melavellinum, Gunnar Huseby varpar meðal annars kringlu í kringlukasti. Svo sjást myndir af spretthlaupi, kúluvarpi, spjótkasti, hástökki og langhlaupi. Laxveiði í fossi.
Skemmtilegar myndir af ketti uppi á spýtu.
Finnskir fimleikamenn leika listir sínar í Tívolíinu í Vatnsmýri. Svipmyndir af Tívolí, meðal annars miðasölunni og bílabrautinni.
Tegund
Land
Kvikmyndataka
Þátttakendur
Athugasemdir
Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina