Myndir

Kjartan Ó. Bjarnason kvikmyndir 15

9 min., Þögul
DA

Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum en eftir hann liggur þó mikið efni. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talað yfir þær. Þá fór hann margar sýningaferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.
Þeir bútar úr kvikmyndum Kjartans sem hér um ræðir eru náttúrulífsmyndir og myndir af íþróttamóti, flugvélum og snjómokstri. Fjallkonan sést stuttlega við Alþingishúsið á 17. Júní. Mót á Melavelli. Sveinn Björnsson forseti Íslands fær afhentan gullskjöld, keppt í spretthlaupi, hástökki, langhlaupi og kúluvarpi. Gunnar Huseby og Clausen bræður. Gamla flugstöðin í Keflavík. Flugvél merkt Iceland Air Rescue Unit, flugbjörgunarsveit. Douglas Dakota, DC-3. Trans-Canada flugvél líklega  Vickers 757 Viscount vél. Farþegar ganga um borð. Jarðýtur ryðja miklum snjó á vegum úti. Bíll ekur eftir nýruddum veginum og milli hárra snjóveggja.

Kommentarer

Það eru engar athugasemdir. Gerðu fyrstu athugasemdina

CAPTCHA Dette spørgsmål er for at teste om du er et menneske og for at undgå spam.

Athugasemdir

Það þarf að samþykkja athugasemd þína áður en hún birtist á vefnum.
Hafið samband við Kvikmyndasafn Íslands ef upp koma tæknileg vandamál Sjá kvsi@kvikmyndasafn.is.
Viltu kaupa afrit af myndinni eða klippt? Hafðu samband filmarkivet@dfi.dk